Brákarhátíð

Brákarhátíð er bæjarhátíð á vegum Hollvinasamtaka Borgarness. Hátíðin var fyrst haldin 2008 og er nefnd eftir kvenhetjunni Þorgerði Brák úr Egilssögu. Hátíðin fer fram seinustu helgina í júní.
Á síðustu árum hefur Brákarhátíð og Hinsegin hátíð vesturlands tekið höndum saman og slegið saman í eina stóra hátíð.
Fjölbreytt dagskrá, mikið fjör og langoftast gott veður!


