
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi. Sveitarfélagið er um 4.926 ferkílómetrar að stærð sem gerir það eitt víðfeðmasta sveitarfélag á Íslandi. Íbúar eru yfir 4.000 og dreifast nokkuð jafnt í þéttbýli og dreifbýli.
Skólastarf er öflugt í sveitarfélaginu og eru starfræktir fimm leikskólar, tveir grunnskólar, tónlistarskóli, menntaskóli og tveir háskólar. Einnig styrkir símenntun á Vesturlandi atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem tekur mið af þörfum atvinnulífsins og einstaklinga.
Þá er að finna fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf sem hentar öllum aldurshópum.
Íbúðahúsalóðir
Á Hvanneyri hefur Landbúnaðarháskóli Íslands höfuðstöðvar sínar. Þéttbýlið á Hvanneyri fer vaxandi og hefur skólinn sérstöðu þar sem höfuðáhersla er lögð á náttúruna með áherslur á matvælaöryggi, hönnun umhverfis, skipulagsmál og verndun og nýtingu auðlinda jarðarinnar. Mikið rannsóknarstarf fer fram við háskólann og auk þess að vera á Hvanneyri þá er skólinn einnig með starfstöð að Keldnaholti í Reykjavík.
Á Hvanneyri eru starfræktir bæði leikskóli og grunnskóli. Þá eru tvö áhugaverð söfn á staðnum, Landbúnaðarsafn Íslands og Ullarselið.
Kirkja hefur verið á staðnum um aldir og var Hvanneyri í landnámi Skallagríms Kveldúlfssonar.
Lóðir á HVANNEYRIÞað er alltaf ánægjulegt þegar ungt fólk sem hefur hleypt heimdraganum ákveður að fara aftur í ræturnar og flytja heim í Borgarbyggð. Það hefur einnig borið á því að fólk sem vill einfalda líf sitt og búa í nánara samfélagi sæki í að flytja til sveitarfélagsins. Vel er hlúð að börnum og má nefna að börnum stendur leikskólavist til boða við 12 mánaða aldur. Mikil uppbygging hefur verið varðandi íþróttastarf og má þá nefna fjölnota knatthús sem staðsett er í Borgarnesi. Atvinnulíf hefur blómstrað með auknum ferðamannastraumi og frekari uppbygging er í kortunum.
Mannlífið er iðandi í sveitarfélaginu og fjöldi afþreyingarmöguleika og blómstrandi félagsstarf af ýmsum toga. Þá er fjöldi reglulegra viðburða þar sem allir geta fundið eitthvað skemmtilegt sem höfðar til þeirra.
Skoða viðburði
Borgarbyggð leggur áherslu á að í sveitarfélaginu sé hlúð að námsfólki og er mikill metnaður í skólastarfi á öllum námsstigum, frá leikskólum upp í háskólanám þar sem val er um tvo háskóla sem eru starfræktir í sveitarfélaginu.

Allir leikskólar taka við börnum á aldrinum 12 mánaða til 6 ára. Í Borgarbyggð eru starfandi fimm leikskólar, tveir í Borgarnesi, einn á Varmalandi, einn á Hvanneyri og einn á Kleppjárnsreykjum.
Skólarnir
Annars vegar er það Grunnskólinn í Borgarnesi og hins vegar Grunnskóli Borgarfjarðar sem er starfræktur á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi.
Báðir skólarnir eru heilsueflandi skólar og með Grænfána.

Borgarbyggð státar af fyrirtaks menntaskóla sem fer ótroðnar slóðir í starfsháttum og námsframboð er fjölbreytt.
Skólinn er með fjórar bóknámsbrautir til stúdentsprófs, opna braut, náttúrufræðibraut, íþróttafræðibraut og félagsfræðibraut.
Listaskólinn hefur fjórar starfstöðvar, í Borgarnesi, á Hvanneyri, á Kleppjárnsreykjum og á Varmalandi. Kennsluaðferðir og viðfangsefni skólans eru fjölbreytt og sveigjanleg og henta öllum aldurshópum.
Listaskóli
Annars vegar er það Háskólinn á Bifröst sem hefur haslað sér völl í fjarnámi og stendur framarlega á þeim vettvangi þar sem nemendur geta sniðið námið að sér.
Hins vegar er Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri sem hefur mikla sérstöðu þar sem höfuðáhersla er lögð á náttúruna í víðum skilningi.
Landbúnaðarháskólinn Háskólinn á Bifröst
Markmið símenntunar er að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem tekur mið af þörfum atvinnulífs og einstaklinga.
Símenntun