Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi. Sveitarfélagið er um 4.926 ferkílómetrar að stærð sem gerir það eitt víðfeðmasta sveitarfélag á Íslandi. Íbúar eru yfir 4.000 og dreifast nokkuð jafnt í þéttbýli og dreifbýli.
Skólastarf er öflugt í sveitarfélaginu og eru starfræktir fimm leikskólar, tveir grunnskólar, tónlistarskóli, menntaskóli og tveir háskólar. Einnig styrkir símenntun á Vesturlandi við atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem tekur mið af þörfum atvinnulífs og einstaklinga.
Þá er að finna fjölbreytt íþrótta- og tómstunadtarf sem hentar öllum aldurshópum.
TESTtest