Borgarbyggð býður upp á fjölbreytt úrval lausra íbúðalóða á eftirsóttum og vaxandi svæðum sveitarfélagsins. Lóðirnar henta bæði fyrir einbýlishús, parhús og fjölbýli og eru staðsettar í nálægð við þjónustu, skóla og fjölbreytta útivistarmöguleika. Borgarbyggð er heppilegur kostur fyrir þau sem vilja byggja sér heimili í öruggu og fjölskylduvænu umhverfi, þar sem stutt er í náttúruna en jafnframt góða innviði og samgöngur.
Byggðarráð Borgarbyggðar, í umboði sveitarstjórnar, sér um úthlutun byggingalóða í Borgarbyggð sem sveitarfélagið ráðstafar.
Í deiliskipulagsuppdráttum og -skilmálum eru allar upplýsingar um staðsetningu, stærð og hámarks byggingarmagn lóðanna.
Reglur um úthlutun lóða í Borgarbyggð má finna hér.
Lóðaumsóknir eru gerðar rafrænt hér.
Hafa má samband á lodir@borgarbyggd.is fyrir nánari upplýsingar.
