Algengt er að fólk sem ólst upp í Borgarnesi geti ekki hugsað sér annað en að ala sín börn upp þar. Hjónin Díana Brá Bragadóttir og Arnar Gylfi Jóhannesson fluttu heim til Borgarness þegar þau fóru að huga að barneignum. Þau voru ákveðin í því að gefa börnunum sínum sama frelsi og þau nutu í sínum uppvexti þar sem heill bær tekur þátt í mótun einstaklingsins.
Sveitarfélagið er um 4.926 ferkílómetrar sem gerir það að einu af þeim stærstu á landinu. Fjöldi íbúa er rúmlega 4.000 og dreifist nokkuð jafnt í þéttbýli og dreifbýli.
Í Borgarbyggð er fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf sem hentar öllum aldurshópum. Frístundaheimili fyrir börnin eru við báða grunnskólana og fyrir ungmennin er Félagsmiðstöðin Óðal með starfsemi og viðburði. Þrjár sundlaugar eru í sveitarfélaginu og fjórir golfvellir.
Þá er félagsstarf öflugt þar sem fjöldi kóra starfa, níu kvenfélög, ferðafélag, Rótarý- og Lionsklúbbur ásamt fjórum björgunarsveitum. Í sveitarfélaginu eru jafnframt starfandi tvö félög eldri borgara og standa þau reglulega fyrir samkomum og viðburðum.
Menningarlíf er blómlegt, fjöldi safna með ýmsa ólíka viðburði fyrir fólk á öllum aldri.

Borgarbyggð státar af mikilli náttúrufegurð hvort sem horft er til sjávar eða sveita.
Hér er að finna fossa, ár, fjöll, hraun, hveri, skóga og jökla. Útivistarmöguleikarnir eru endalausir og því auðvelt að finna afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
Í Borgarbyggð eru frábærir golfvellir með öflugu ungmennastarfi. Fyrir hestafólk er að finna góða aðstöðu til hestamennsku í nánd við þéttbýliskjarnana. Stangveiði er mikið stunduð í sveitarfélaginu yfir sumarmánuðina, jafnt af íbúum sem gestum.
Sveitarfélagið er einstaklega ríkt af útivistarsvæðum og gönguleiðum.

Borgarbyggð er eitt merkasta landnámssvæði Íslands og gegndi svæðið lykilhlutverki á fyrstu árum byggðar í landinu.
Á Borg ólst upp sonur Skallagríms, Egill Skalla-Grímsson, eitt þekktasta skáld og nafn Íslendingasagna. Atburðir Egils sögu mynda órjúfanleg tengsl við svæðið sem gerir Borgarbyggð að lifandi sögusviði liðinna tíma.
Á miðöldum varð Borgarbyggð jafnframt mikilvæg menningarmiðstöð. Í Reykholti bjó Snorri Sturluson, einn áhrifamesti Íslendingur fyrr og síðar. Þar ritaði hann meðal annars Heimskringlu og Snorra-Eddu, verk sem eru grundvallarrit í þekkingu okkar á norrænni goðafræði, sögu og menningu.
Í Borgarbyggð mætast landnámsöld, sagnaritun og menningarsaga Íslands. Minjar, sögustaðir og frásagnir fortíðarinnar eru enn sýnilegar og gera svæðið að einstökum stað.