Atvinnuhúsalóðir í Borgarbyggð

Borgarbyggð er í jaðri höfuðborgarsvæðisins en jafnframt á krossgötum landshluta. Samgöngur eru traustar og fjarskipti örugg. Borgarbyggð er ákjósanlegur staður fyrir smá sem stór fyrirtæki, innlend eða alþjóðleg. Borgarbyggð býður upp á atvinnulóðir við Vallarás í Borgarnesi og við Melabraut og Hagaveg.

Vel staðsett svæði

Borgarbyggð býður upp á fjölbreyttar lausar atvinnuhúsalóðir á vel staðsettum svæðum innan sveitarfélagsins. Lóðirnar henta fyrir margvíslega atvinnustarfsemi, svo sem iðnað, þjónustu, verslun og léttan rekstur, og eru staðsettar með gott aðgengi að samgöngum og innviðum. Borgarbyggð leggur áherslu á jákvætt og hvetjandi atvinnuumhverfi þar sem frumkvöðlastarfsemi og uppbygging fyrirtækja fær að blómstra.